
Kennslufræði yngri barna í grunnskóla
120 einingar - M.Ed. gráða
Ertu með bakkalárgráðu í annarri háskólagrein og langar að verða kennari? M.Ed. í kennslufræði grunnskóla er meistaranám í uppeldis- og kennslufræði fyrir þá sem lokið hafa BA-, BS- eða B.Ed.-prófi í einni af faggreinum grunnskóla. Námið er í nánum tengslum við vettvang og vettvangsnám er samþætt fræðilegum undirbúningi.

Um námið
M.Ed. í kennslufræði grunnskóla er tveggja ára meistaranám í uppeldis- og kennslufræði sem lýkur með 30 eininga lokaverkefni. Í náminu öðlast nemendur þekkingu í kennslufræði, aðferðafræði og fræðilegri undirstöðu uppeldis og menntunar. Verulegur hluti námsins fer fram á vettvangi grunnskóla.

Launað starfsnám og eitt leyfisbréf
Kennaranemar í leik- og grunnskólakennaranámi geta verið í 50% launuðu starfsnámi á lokaári sínu og þeir sem velja M.Ed. leið skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð. Allir kennaranemar útskrifast með leyfisbréf með heimild til kennslu á þremur skólastigum.
Bakkalárgráða (BA/BS/B.Ed.) í kennslugrein grunnskólans eða á námssviði sem tengist kennslu yngri barna í grunnskóla, með fyrstu einkunn (7,25) eða hærra.

Starfsvettvangur
Meistaragráða veitir rétt til að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Með sérstöku vali geta nemendur á kjörsviðinu kennsla ungra barna í grunnskóla að auki fengið heimild til að starfa með elstu börnum leikskóla. Langflestir þeirra sem ljúka kennaranámi starfa við kennslu en menntunin nýtist einnig vel á öðrum vettvangi, bæði innan menntakerfisins og á almennum vinnumarkaði. Kennaramenntun er alþjóðlega viðurkennt nám og eru atvinnumöguleikar að loknu námi miklir.
Dæmi um starfsvettvang
- Kennsla í grunnskóla
- Sérfræðistörf innan menntakerfisins

Félagslíf
Nemendafélagið Kennó er félag kennaranema við Háskóla Íslands. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum. Félagið hefur einnig staðið fyrir verkefninu Komdu að kenna sem hefur hefur það að markmiði að kynna kennaranám. Fylgstu með Komdu að kenna á Facebook, Instagram og Snapchat!
Þú gætir líka haft áhuga á: | ||
---|---|---|
Uppeldis- og menntunarfræði, MA | Menntunarfræði leikskóla, M.Ed. | Menntun framhaldsskólakennara |
Þú gætir líka haft áhuga á: | |
---|---|
Uppeldis- og menntunarfræði, MA | Menntunarfræði leikskóla, M.Ed. |
Menntun framhaldsskólakennara |
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa
1. hæð, Stakkahlíð – Enni
Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga
Sími 525 5950
menntavisindasvid[hja]hi.is
Fyrirspurnum um nám í deildinni skal beina til Bryndísar Garðarsdóttur deildarstjóra Deild kennslu- og menntunarfræði
netfang: bryngar[hja]hi.is, símanr. 525 5342
