
Kennsla náttúrugreina
120 einingar - M.Ed. gráða
M.Ed.-námið býr nemendur undir kennslu náttúrugreina. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á náttúrugreinar, eða BA/BS-prófi í skyldum greinum. Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.

Um námið
Meginmarkmið námsins er að efla þekkingu og færni þátttakenda í náttúrufræðigreinum og kennslufræðum tengdum þessum greinum þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna náttúrufræðigreinar. Áhersla er lögð á kennslufræði náttúrufræðigreina og þróunarstarf en þátttakendum gefst líka færi á að styrkja kunnáttu sína í náttúrufræðigreinum eftir því sem hugur þeirra stendur til.

Launað starfsnám og eitt leyfisbréf
Kennaranemar í leik- og grunnskólakennaranámi geta verið í 50% launuðu starfsnámi á lokaári sínu og þeir sem velja M.Ed. leið skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð. Allir kennaranemar útskrifast með leyfisbréf með heimild til kennslu á þremur skólastigum.
Við inntöku í meistaranám gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25).

Starfsvettvangur
Meistaragráða veitir rétt til að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Með sérstöku vali geta nemendur á kjörsviðinu kennsla ungra barna í grunnskóla að auki fengið heimild til að starfa með elstu börnum leikskóla. Langflestir þeirra sem ljúka kennaranámi starfa við kennslu en menntunin nýtist einnig vel á öðrum vettvangi, bæði innan menntakerfisins og á almennum vinnumarkaði. Kennaramenntun er alþjóðlega viðurkennt nám og eru atvinnumöguleikar að loknu námi miklir.
Dæmi um starfsvettvang
- Kennsla í grunnskóla
- Sérfræðistörf innan menntakerfisins

Félagslíf
Nemendafélagið Kennó er félag kennaranema við Háskóla Íslands. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum. Félagið hefur einnig staðið fyrir verkefninu Komdu að kenna sem hefur hefur það að markmiði að kynna kennaranám. Fylgstu með Komdu að kenna á Facebook, Instagram og Snapchat
Þú gætir líka haft áhuga á: | ||
---|---|---|
Menntunarfræði leikskóla, M.Ed. | Kennslufræði yngri barna í grunnskóla, M.Ed. | Menntun framhaldsskólakennara |
Þú gætir líka haft áhuga á: | |
---|---|
Menntunarfræði leikskóla, M.Ed. | Kennslufræði yngri barna í grunnskóla, M.Ed. |
Menntun framhaldsskólakennara |
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa
1. hæð, Stakkahlíð – Enni
Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga
Sími 525 5950
menntavisindasvid[hja]hi.is
Fyrirspurnum um nám í deildinni skal beint til Sigríðar Pétursdóttur deildarstjóra.
Sími 525 5917
sigridu[hja]hi.is
