
Kennsla list- og verkgreina
120 einingar - M.Ed. gráða
M.Ed.-námið býr nemendur undir list- og verkgreinakennslu í grunnskóla. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á list- og verkgreinar, eða BA/BS-prófi í skyldum greinum. Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.

Um námið
Meistaranám í kennslu list- og verkgreina er 120 eininga nám til M.Ed.-gráðu fyrir þá sem hyggja á kennslu í faggrein á sviði list- og/eða verkgreina í grunnskólum. Námið er ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig grunnskólakennslu með sérstaka áherslu á kennslu list- og verkgreina, en þær eru: Hönnun og smíði, sjónlistir, sviðslistir, textílmennt og tónmennt.

Launað starfsnám og eitt leyfisbréf
Kennaranemar í leik- og grunnskólakennaranámi geta verið í 50% launuðu starfsnámi á lokaári sínu og þeir sem velja M.Ed. leið skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð. Allir kennaranemar útskrifast með leyfisbréf með heimild til kennslu á þremur skólastigum.
Við inntöku í meistaranám gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25).
Kennaranámið er skipulagt með fyrra nám umsækjenda í huga og er gert er ráð fyrir 120e undirbúningi á bakkalárstigi í kennslugreinum grunnskóla. Ef bakkalárgráða umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum á samsvarandi námsleið í grunnnámi.