
Kennsla íslensku
120 einingar - MT gráða
MT-námið býr nemendur undir íslenskukennslu í grunnskóla. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á íslensku eða BA/BS-prófi í skyldum greinum. Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.

Um námið
Námið er ætlað þeim sem hafa lokið B.Ed. prófi í grunnskólakennslu með áherslu á íslensku eða B.A. prófi í íslensku.
Kjörsvið:
- Fimm ára kennaranám
- Íslenska fyrir kennara með leyfisbréf
- Kennslufræði grunnskóla

Nýr valkostur í kennaranámi
Frá og með haustmisseri 2020 verður boðið upp á MT-námsleiðir (e. Master of Teaching) fyrir þá sem stefna á kennaranám. Þessar námsleiðir fela það í sér að nemandi getur tekið kennslufræðitengd námskeið í stað þess að skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð.
Við inntöku í nám til MT-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25).
Kennaranámið er skipulagt með fyrra nám umsækjenda í huga og er gert er ráð fyrir 120e undirbúningi á bakkalárstigi í kennslugreinum grunnskóla. Ef bakkalárgráða umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum á samsvarandi námsleið í grunnnámi.

Starfsvettvangur
Meistaragráða veitir rétt til að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Með sérstöku vali geta nemendur á kjörsviðinu kennsla ungra barna í grunnskóla að auki fengið heimild til að starfa með elstu börnum leikskóla. Langflestir þeirra sem ljúka kennaranámi starfa við kennslu en menntunin nýtist einnig vel á öðrum vettvangi, bæði innan menntakerfisins og á almennum vinnumarkaði. Kennaramenntun er alþjóðlega viðurkennt nám og eru atvinnumöguleikar að loknu námi miklir.
Dæmi um starfsvettvang
- Kennsla í grunnskóla
- Sérfræðistörf innan menntakerfisins

Félagslíf
Nemendafélagið Kennó er félag kennaranema við Háskóla Íslands. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum. Félagið hefur einnig staðið fyrir verkefninu Komdu að kenna sem hefur hefur það að markmiði að kynna kennaranám. Fylgstu með Komdu að kenna á Facebook, Instagram og Snapchat
Þú gætir líka haft áhuga á: | ||
---|---|---|
Menntunarfræði leikskóla, M.Ed. | Kennslufræði yngri barna í grunnskóla, M.Ed. | Menntun framhaldsskólakennara |
Þú gætir líka haft áhuga á: | |
---|---|
Menntunarfræði leikskóla, M.Ed. | Kennslufræði yngri barna í grunnskóla, M.Ed. |
Menntun framhaldsskólakennara |
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa
1. hæð, Stakkahlíð – Enni
Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga
Sími 525 5950
menntavisindasvid[hja]hi.is
Fyrirspurnum um nám í deildinni skal beint til Sigríðar Pétursdóttur deildarstjóra.
Sími 525 5917
sigridu[hja]hi.is
