
Kennsla erlendra tungumála
120 einingar - M.Ed. gráða
M.Ed.-námið býr nemendur undir kennslu erlendra tungumála. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á erlend tungumál, eða BA/BS-prófi í skyldum greinum. Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.

Um námið
Kennsla erlendra tungumála meistaranám til 120 eininga. Námið er ætlað þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á erlend tungumál eða BA-prófi í ensku, dönsku eða öðru erlendu tungumáli.
Kjörsvið:
- Danska
- Enska
- Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-námi
- Erlend tungumál fyrir kennara með leyfisbréf

Launað starfsnám og eitt leyfisbréf
Kennaranemar í leik- og grunnskólakennaranámi geta verið í 50% launuðu starfsnámi á lokaári sínu og þeir sem velja M.Ed. leið skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð. Allir kennaranemar útskrifast með leyfisbréf með heimild til kennslu á þremur skólastigum.
Við inntöku í meistaranám gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25).
Kennaranámið er skipulagt með fyrra nám umsækjenda í huga og er gert er ráð fyrir 120e undirbúningi á bakkalárstigi í kennslugreinum grunnskóla. Ef bakkalárgráða umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum á samsvarandi námsleið í grunnnámi.