
Jarðfræði
120 einingar - MS gráða
. . .
Námið er tveggja ára fræðilegt og verklegt framhaldsnám (rannsóknatengt framhaldsnám) í jarðfræði við Jarðvísindadeild. Námið er 120 einingar og er fullgilt próf til prófgráðunnar magister scientiarum, MS.
Námið
Fyrir nemendur

Um námið
Í meistaranámi í jarðfræði fá nemendur tækifæri til að takast á við hagnýt og spennandi námskeið og rannsóknarverkefni.
Leiðsögn er í höndum kennara Jarðvísindadeildar og annarra vísindamanna á Jarðvísindastofnun Háskólans og samstarfsstofnunum hennar.
Meistaraverkefnið er 60 einingar og námskeið eða annað nám 60 einingar.
Valið er á milli 2 kjörsviða:
- Fyrsta háskólagráða, BS-próf jarðfræði eða skyldum greinum, með lágmarkseinkunn 6,5 frá Háskóla Íslands eða sambærilegri einkunn frá öðrum háskóla. Auk þess geta verið forkröfur/undirbúningsnámskeið sem verður að ljúka áður en hægt er að hefja meistaranám.
- Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
- Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.