
Íslensk málfræði
MA gráða
Markmið meistaranáms í íslenskri málfræði er að veita nemendum vísindalega þjálfun og búa þá undir framhaldsnám og störf af ýmsu tagi, s.s. framhaldsskólakennslu, margvísleg fræðistörf og doktorsnám

Um námið
Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, umræðna og margs kyns verkefnavinnu og ritgerðasmíði. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslunni. Þar sem hér er um rannsóknanám að ræða er gert ráð fyrir verulegu frumkvæði og sjálfstæði nemenda í vali viðfangsefna, heimildaöflun, heimildatúlkun o.s.frv.
BA-próf með fyrstu einkunn í íslensku eða almennum málvísindum sem aðalgrein, eða BA-próf með fyrstu einkunn í íslensku sem aukagrein með áherslu á málfræði (nauðsynlegt að nemandinn hafi tekið öll kjarnanámskeið í málfræði í íslensku sem aðalgrein). Nemandi skal hafa tekið a.m.k. 10 eininga lokaverkefni.