
Íslensk fræði
MA gráða
Markmið meistaranáms í íslenskum fræðum er að veita nemendum vísindalega þjálfun og búa þá undir framhaldsnám og störf af ýmsu tagi, s.s. framhaldsskólakennslu, margvísleg fræðistörf og doktorsnám. Í náminu eru tvö kjörsvið: málfræði og bókmenntir og miðaldafræði.

Um námið
Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, umræðna og margs kyns verkefnavinnu og ritgerðasmíði. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslunni. Þar sem hér er um rannsóknanám að ræða er gert ráð fyrir verulegu frumkvæði og sjálfstæði nemenda í vali viðfangsefna, heimildaöflun, heimildatúlkun o.s.frv.
Inntökuskilyrði eru BA-próf með fyrstu einkunn í íslensku sem aðalgrein, eða BA-próf með fyrstu einkunn í íslensku sem aukagrein (nauðsynlegt er að nemandinn hafi tekið a.m.k. 30e í kjarnanámskeiðum í málfræði og 30e í kjarnanámskeiðum í bókmenntum í íslensku sem aðalgrein). Nemandi skal hafa tekið a.m.k. 10 eininga lokaverkefni.