
Hjúkrunarfræði, hjúkrunarstjórnun
120 einingar - MS gráða
Býr í þér leiðtogi? Langar þig að starfa sem stjórnandi í hjúkrun? Kynntu þér meistaranám í hjúkrunarfræði. Ef þú ert með fyrstu einkunn úr BS-námi getur þú fengið allt að 30 einingar metnar í MS-námið.

Um námið
MS-nám í hjúkrunarfræði - hjúkrunarstjórnun (120e) felur í sér:
- Kjarnanámskeið (24e)
- Skyldunámskeið á áherslusviði (24e)
- Valnámskeið (12e)
- Meistaraverkefni (30e)
Umsækjendur með að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn úr BS-námi geta fengið allt að 30e metnar.
Fullt nám tekur eitt og hálft ár en algengt er að stunda hlutanám með vinnu.

Kjörsvið
- Rekstur og mannauðsstjórnun - fyrir þá sem hyggjast vinna við stjórnun og forystu stofnana og skipulagsheilda
- Forysta og frumkvöðlastarf - fyrir þá sem hyggjast vinna við stjórnun og forystu ákveðinna málaflokka og verkefna
(ATH: Ekki er tekið inn í þetta kjörsvið á vormisseri 2020).
Umsækjandi um meistaranám við Hjúkrunarfræðideild þarf að hafa lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands eða öðru samsvarandi prófi. Miðað er við að nemandi hafi að lágmarki 6,5 í aðaleinkunn úr BS prófi eða samsvarandi námi. Jafnframt þarf nemandi að búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu. Nánari upplýsingar um inntökuskilyrði í MS-nám í hjúkrunarfræði.
Hafa samband
Skrifstofa Hjúkrunarfræðideildar
Eirberg, 1. hæð, Eiríksgata 34
101 Reykjavík
Sími 525 4960
hjukrun@hi.is
Opið virka daga frá kl. 10 - 15
