
Heilsuefling og heimilisfræði
120 einingar - M.Ed. gráða
Ef þú hefur áhuga á mat, heilsu og vellíðan þá gæti meistaranám í heilsueflingu og heimilisfræði verið fyrir þig. Boðið er upp á grunnskólakennaranám þar sem nemendur sérhæfa sig í faggreininni heimilisfræði samhliða því að byggja upp traustan grunn í heilsueflingu í skólastarfi. Námið veitir leyfisbréf til að starfa í grunnskóla.

Um námið
Heilsuefling og heimilisfræði er tveggja ára 120 eininga nám til M.Ed-gráðu. Í náminu er lögð áhersla á allt lífshlaupið og dæmi um viðfangsefni eru matreiðsla, líkamsvirðing, heilsulæsi, hreyfing, fæðuval, sjálfbærni, fjölmiðlar og heilsuefling. Námið er fyrst og fremst ætlað þeim sem vilja verða heimilisfræðikennarar í grunnskólum.

Aukin sérhæfing ― fjölbreytt verkefni
Í náminu er unnt að auka sérhæfingu með vali viðfangsefnis í lokaverkefni. Oft eru lokaverkefni rannsóknamiðuð þótt þau geti einnig falið í sér námsefnisgerð, matsverkefni eða þróunarverkefni. Mikil þörf er á fleiri rannsóknum sem tengjast heimilisfræði og eru mörg sóknarfæri fólgin í því að byggja upp rannsóknir og kennslu í tengslum við mat, samfélag og líðan.
Við inntöku í meistaranám gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu (B.Ed.) með fyrstu einkunn (7,25).

Starfsvettvangur
Námsbrautinni er ætlað að mennta heimilisfræðikennara sem sérfræðinga í heilsueflingu og heimilisfræðikennslu. Meginmarkmið námsins er að undirbúa nema fyrir heimilisfræðikennslu í grunnskóla og samstarf kennara þar sem viðkomandi getur tekið að sér leiðtogahlutverk í heilsueflingu innan skólans og víðar í samfélaginu.
Dæmi um starfsvettvang
- Kennsla í heimilisfræði í grunnskóla
- Leiðtogahlutvek í heilsueflingu
- Sérfræðistörf í menntakerfinu
Hafðu samband
Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs
Stakkahlíð, 1. hæð í Enni
Opið kl. 8.15 – 15.00 alla virka daga
Sími 525 5950
menntavisindasvid[hja]hi.is
Almennum fyrirspurnum skal beint til kennsluskrifstofu.
Fyrirspurnum til deildarinnar og um námið í deildinni skal beint til deildarstjóra, Sigurlaugu Maríu Hreinsdóttur (525 5981, sigurlaug[hja]hi.is).
