Skip to main content

Hermi- og færnisetur

Hermi- og færnisetur - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hermi- og færnisetrið er um 300 m2 að stærð og útbúið fullkomnum tækjabúnaði, meðal annars tölvustýrðum sýndarsjúklingum, fjölda hlutherma auk margvíslegra möguleika til gagnvirkrar kennslu með nýjustu tækni.

Hermi- og færnisetrið er staðsett á 2. hæð og í kjallara Eirbergs, húsakynnum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar við Eiríksgötu 34.

Markmiðið með starfsemi Hermi- og færnisetursins er að nemendur í heilbrigðisvísindum fái kennslu og þjálfun í flestu sem snýr að meðferð og meðhöndlun sjúklinga.

Þar er kennt við öruggar aðstæður og hægt að endurtaka viðfangsefni eins oft og þörf krefur. Markmiðið er að líkja eftir raunverulegum aðstæðum og undirbúa nemendur eins vel kostur er fyrir störf á heilbrigðisstofnunum. Til að mynda er hægt að kenna og þjálfa viðbrögð við sjaldgæfum aðstæðum og lífsógnandi uppákomum, til að auka færni í slíkum aðstæðum og efla öryggi sjúklinga. Í Hermi- og færnissetrinu kenna reyndir kennarar sem eru meðal annars með alþjóðlegréttindi í hermikennslufræðum (e.simulation training).

Hægt er að fá aðstöðu Hermi- og færnisetursins leigða. 

Tengt efni