Skip to main content

Sumarnám við Nordic Centre í Indlandi 2021

-English below-

Umsóknarfrestur er 22. febrúar.

Nemendum Háskóla Íslands býðst að sækja um sumarnám við Nordic Centre á Indlandi. Þetta er einstakt tækifæri til að taka hluta af háskólanáminu við virta háskóla á Indlandi. Námið er kennt í fjarnámi.

Nordic Centre India (NCI) er samnorræn menntamiðstöð sem Háskóli Íslands er félagi að. Á hverju ári fara nemendur og fræðimenn frá háskólum víðs vegar af Norðurlöndunum til að stunda nám og rannsóknir við miðstöðina í Nýju Delí og hafa þar afnot af gestaíbúð.  Mikill metnaður er lagður í sumarnámskeiðin og kemst takmarkaður fjöldi nemenda við aðildarskólana að á hverju ári. Námskeiðin eru haldin í samstarfi við hátt skrifaða háskóla víðs vegar á Indlandi. 

Árið 2021 er boðið upp á námskeiðið Gender and Society in Contemporary India - 19. júlí til 13. ágúst við University of Hyderabad. Námskeiðið er ætlað nemendum í meistaranámi og á 3. ári í grunnnámi.

Skólagjöld fyrir námskeiðið eru EUR 500 sem greiðast beint til University of Hyderabad. 

Námskeiðin eru 7.5 ECTS einingar en hægt er að skila inn sérstöku ritgerðarverkefni í lokin og fá 10 ECTS einingar fyrir samtals, standist verkefnið kröfur. Með námssamningi og samþykki deildar má fá einingarnar metnar inn í námsferil við Háskóla Íslands.

Almenn skilyrði
Umsækjandi skal vera nemandi við Háskóla Íslands og hafa lokið 60 ECTS einingum þegar námskeiðið hefst. 

Rafræn umsókn

Fylgigögn með umsókn:

  • Námsferilsyfirlit með árangursröðun (fæst á Þjónustuborði)
  • Kynningarbréf (1 bls.)

Við mat á umsóknum er tekið tillit til kynningarbréfs, einkunna, framgangs í námi og viðtals (ef til kemur). 

Frekari upplýsingar eru veittar á Alþjóðasviði, outgoing.international@hi.is og í síma 525 4311. 

-----------

Summer Program at the Nordic Centre India 2021

Application Deadline is February 22, 2021

Students at the University of Iceland can apply for a Summer School at the Nordic Centre India. This is a unique opportunity for students to take a part of their university studies in India and discover incredible Indian culture.
 
The Nordic Centre India (NCI) is a joint Nordic education centre, which the University of Iceland is a part of. Every year, numerous students and academics from the Nordic Countries visit NCI for study and research and enjoy its in-residence programme with a furnished apartment. The Summer Programs at the Nordic Centre are very ambitious and admission is on a selective basis from partner universities. The summer programmes are held in partnership with highly respected universities in India. Students stay in dormitories and become a part of a Nordic student group. This way, participating students gain a contact network in India and in the Nordics. 
 
In 2021, the following summer programme is on offer

The summer programs count as 7.5 ECTS and can be evaluated as part of study record at the University of Iceland provided that students sign a learning agreement with their department (which has to approve the course). It is also an option to do an additional final assignment and receive 10 credits.
 
 
Elegibility criteria:
•    Applicants shall be students at the University of Iceland and to have completed at least 60 ECTS credits at undergraduate level when the summer school starts. 
 
Electronic application

Applications are submitted electronically along with accompanying documents in attachment

Accompanying documents:

  • Transcript of records with ranking (available at the Service Desk in the University Centre (Háskólatorg))
  • Personal statement (1 page)

During the selction process the following are taken into account: the personal statement, grade transcript, academic progress as well as interview (if applicable). 

For further information, please contact the International Office of the University of Iceland by phone 525 4311 or email outgoing.international@hi.is