Hjólreiðar við HÍ Hjólakort HÍ Á kortinu er sýndur radíus tímavegalengda frá Háskóla Íslands. Hjólað í vinnuna Háskóli Íslands hefur tekið þátt í átakinu Hjólað í vinnuna frá árinu 2015. Markmið átaksins er að hvetja fólk til þess að nota umhverfisvænan samgöngumáta á leið til vinnu. Hjólavottun Háskóli Íslands hefur hlotið silfur í hjólavottun fyrir bæði Stakkahlíð og miðsvæði HÍ. Flugsamgöngur Loftslagsbreytingarnar er einn stærsti vandi sem mannkynið stendur frammi fyrir og hvað neikvæð áhrif einstaklinga varðar vegur flugið einna þyngst. Við búum á eyju þannig að ekki er alltaf hægt að komast hjá því að fljúga, en spurningin er hvort öll flug séu jafn mikilvæg. Við hvetjum starfsfólk Háskóla Íslands og aðra háskólaborgara til að hugsa sig um áður en flogið er. Hér er ákvörðunartré til að hjálpa ykkur að svara spurningunni „Á ég að fljúga?“ Ákvörðunartré fyrir flug Á eftirfarandi grafi má sjá losun koltvísýrings (CO2) vegna flugsamgangna starfsmanna Háskóla Íslands fyrir árið 2018 og 2019, bæði vegna innanlands- og millilandaflugs. Losun vegna flugsamgangna í Háskóla Íslands. Fækkun bílferða Um 90% af losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi Háskóla Íslands má rekja til samgangna. Hér er að finna nokkur góð ráð við að fækka bílferðum Fjarfundir Hægt er að fækka óþarfa ferðum og spara þannig ferðakostnað og tíma, meðal annars með góðum fundarsíma, fjarfundabúnaði eða tölvupósti. Inn á vef Upplýsingatæknisviðs (UTS) Háskóla Íslands er að finna góðar leiðbeiningar um notkun fjarfundabúnaðar. facebooklinkedintwitter