Úthlutun úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands
Þrjátíu og þrír nemendur sem hyggjast hefja nám í Háskóla Íslands í haust tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi 25. júní. Sjóðurinn fagnar tíu ára afmæli í ár.