Skip to main content
23. ágúst 2017

Yfir sexhundruð erlendir nýnemar hefja nám í haust

Kynningardagar fyrir erlenda nemendur við Háskóla Íslands hefjast í dag og standa til 25. ágúst. Yfir sex hundruð erlendir nemar hefja nám í haust, þar af tæplega 280 skiptinemar og rúmlega 320 á eigin vegum. Markmið daganna er að kynna þjónustu Háskólans og styðja nemendur í að aðlagast nýrri menningu og kynnast öðrum nemendum. 
Á dagskrá eru spennandi námskeið, skipulagðar gönguferðir um háskólasvæðið, móttaka með tónlist og léttum veitingum, kynningar fræðasviða og viðburðir á vegum Stúdentaráðs.  

Náms- og starfsráðgjöf býður  upp á námskeiðið The Keys to Success at the University of Iceland þar sem nemendur fá leiðbeiningar um hvernig vænlegast sé að ná árangri í námi við Háskólann og njóta dvalarinnar á Íslandi.  Þá geta áhugasamir nemendur tekið þátt í örnámskeiði í íslensku, Icelandic in 90 minutes. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn verður auk þess með kynningar á safninu og þjónustu þess. 

Á fimmtudeginum 24. ágúst verður öllum erlendum nemendum boðið til móttöku á Háskólatorgi þar sem Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar, og Ragna Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs, flytja ávörp. Alþjóðanefnd Stúdentaráðs býður upp á gönguferðir um háskólasvæðið, Sindri Freyr Guðjónsson treður upp og boðið verður upp á grillaðar pylsur. Dagskráin heldur svo áfram í Stúdentakjallaranum með lifandi tónlist. 

Kynningar fræðasviða eru einnig hluti af dagskrá kynningardaganna.  

Sjá nánari dagskrá

Erlendir nemar fyrir utan Háskólatorg.