Skip to main content
10. mars 2020

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands flutt í nýsköpunarviku í maí

Ákveðið hefur verið að flytja úthlutun hinna árlegu Vísinda- og nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands fram í lok maí en þá fer fram nýsköpunarvika í Reykjavík. Um leið hefur frestur til að skila inn tillögum í samkeppnina verið framlengdur til 31. mars.

Til stóð að veita Vísinda- og nýsköpunarverðlaunin 3. apríl nk. en vegna  COVID 19 faraldursins sem nú gengur yfir var ákveðið að fresta úthlutuninni. Stefnt er að því að hún fari fram einhvern tíma á tímabilinu 23.-27. maí en þá er fyrirhuguð dagskrá tengd nýsköpun og frumkvöðlastarfi víða um borgina sem nær hámarki með ráðstefnunni Startup Iceland í Hörpu. Nákvæm dagsetning verðlaunaafhendingarinnar verður kynnt þegar nær dregur. 

Samkeppnin um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands er opin starfsfólki og stúdentum af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands en leitað er að frumlegum og nýstárlegum hugmyndum meðal háskólaborgara sem fela í sér framfaraskref fyrir samfélag eða atvinnulíf. Sigurlaunin fyrir fyrsta sætið nema allt að þremur milljónum króna.

Samkeppnin, sem hét áður Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, hefur verið haldin innan skólans í yfir 20 ár og verðlaunahafar frá upphafi hafa komið af öllum fræðasviðum skólans. 

Frestur til að skila inn umsóknum í samkeppnina rennur út þriðjudaginn 31. mars 2020. 

Senda inn umsókn

Í ár verða veitt verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokkum:
Heilsa og heilbrigði – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
Tækni og framfarir – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
Samfélag – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
Hvatningarverðlaun – Verðlaunafé 500 þ.kr.

Sigurvegari samkeppninnar, sem kemur úr hópi verðlaunahafa í flokkunum fjórum, hlýtur til viðbótar 1,5 m.kr. í verðlaunafé.

Frekari upplýsingar um samkeppnina, einstaka flokka og umsóknareyðublað um þátttöku er að finna á vefsíðu Háskóla Íslands

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands eru samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Árnason|Faktor, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Auðnu-tæknitorgs.

""