Skip to main content
23. október 2015

Viljayfirlýsing MVS og Þroskaþjálfafélag Íslands

""

Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands hafa undirritað viljayfirlýsingu um faglegt samstarf. Í viljayfirlýsingunni er kveðið á um að báðir aðilar komi á sameiginlegum vettvangi til faglegrar umræðu um störf, starfsvettvang og menntun þroskaþjálfa. Samstarfið skal sérstaklega tiltaka símenntun og framhaldsmenntun fagstéttarinnar.

Á þeim vettvangi verði m.a. rætt um hugmyndafræði og aðferðir, inntak, þróun og gæði þjónustu þroskaþjálfa við fatlað fólk og tengsl við nám í þroskaþjálfafræðum og starfsþróun þroskaþjálfa.
 
Fyrirhugað er að funda að lágmarki einu sinni á ári en þess á milli skal samstarfi vera háttað eins og tilefni eru  til.  

Á myndinni undirrita Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands og Jóhanna Einarsdóttir, sviðsforseti Menntavísindasviðs viljayfirlýsinguna.
Á myndinni undirrita Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands og Jóhanna Einarsdóttir, sviðsforseti Menntavísindasviðs viljayfirlýsinguna.