Skip to main content
5. september 2019

Viðurkenning Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga á Rannsókna- og þróunarsetri um ICNP® á Íslandi

Fulltrúar hagsmunaaðila sem tóku þátt í undirbúningi Rannsókna- og þróunarsetursins

Alþjóðaráð hjúkrunarfræðinga (International Council of Nurses, ICN) hefur samþykkt stofnun Rannsókna- og þróunarseturs um ICNP á Íslandi (ICN Accredited ICNP Research & Development Centre in Iceland)
Hlutverk Rannsókna- og þróunarseturs um ICNP á Íslandi er að mynda og standa vörð um tengslanet hjúkrunarfræðinga, heilbrigðis- og menntastofnana og annarra hagsmunaaðila á Íslandi til að þróa, þýða, innleiða og nota ICNP í kennslu, rannsóknum og klínísku starfi. Með þessu mun ICNP setrið stuðla að þróun á ICNP, styrkja og efla hjúkrun.  
Þróun rafrænnar sjúkraskrár á Íslandi er á tímamótum þar sem nýjar tæknilausnir hafa komið til og breytingar eru í vændum á notkun flokkunarkerfa sem kalla á annars konar lausnir en hingað til. 
Embætti landlæknis tók þá ákvörðun árið 2010 að ICNP skyldi notað á landsvísu sem aðal- flokkunarkerfið til að skrá hjúkrun í rafrænni sjúkraskrá. ICNP hefur síðan verið þýtt á íslensku með stuðningi frá embættinu. 

Ásta Thoroddsen, prófessor er forstöðumaður Rannsókna- og þróunarseturs sem er staðsett í Hjúkrunarfræðideild, Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Setrið mun vera í samstarfi við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og aðra hagsmunaaðila. 

Fulltrúar hagsmunaaðila sem tóku þátt í undirbúningi Rannsókna- og þróunarsetursins

Fulltrúar hagsmunaaðila sem tóku þátt í undirbúningi Rannsókna- og þróunarsetursins