Skip to main content
23. desember 2019

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Daníel Þór Guðmundsson, BS-nemi á þriðja ári í hugbúnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi.

Sjóðurinn styrkir árlega efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í greininni. Sá nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 

Daníel Þór lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 2017 og hóf nám við Háskóla Íslands sama ár. Hann er ekki aðeins afburðanámsmaður heldur einnig afreksmaður í íþróttum og var leikmaður Fram í handbolta í mörg ár þar til hann lagði skóna á hilluna í fyrra.

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

Frekari upplýsingar um sjóði Háskóla Íslands er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands.

Fleiri myndir frá úthlutun verðlaunanna

Daníel Þór Guðmundsson verðlaunahafi ásamt þeim Vigdísi Finnbogasdóttur, fyrrverandi forseta Íslands, Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, og Sigurði Magnúsi Garðarssyni, forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.