Skip to main content
25. ágúst 2022

Varði doktorsritgerð um samband fornleifafræði og þjóðernishyggju

Varði doktorsritgerð um samband fornleifafræði og þjóðernishyggju - á vefsíðu Háskóla Íslands

Angelos Parigoris hefur varið doktorsritgerð í fornleifafræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber titilinn „Between Primitiveness and Civilisation: Nationalism, Archaeology, and the Materiality of Iceland's Past“ og var unnin undir leiðsögn Gavin Lucas, prófessors við Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd voru Guðmundur Hálfdanarson, prófessor við sama skóla og Yannis Hamilakis, prófessor við Brown háskóla. 

Andmælendur við vörnina voru Kristín Loftsdóttir, prófessor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og Carl-Gösta Ojala, vísindamaður við Háskólann í Uppsölum. Sverrir Jakobsson, forseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands þriðjudaginn 23. ágúst síðastliðinn. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Sem fræðigrein hefur fornleifafræði frá upphafi verið samofin nýlendustefnu og orðræðu þjóðernishyggjunnar. Þetta samband er einnig greinilegt á Íslandi þar sem fornleifafræðin hefur haft, og hefur enn, mikilvægu hlutverki að gegna við að móta og endurmóta þjóðernisvitund Íslendinga. Markmið rannsóknar Angelosar er að auka meðvitund um samband fornleifafræði og þjóðernishyggju og upplýsa fornleifafræðilega iðkendur, fræðimenn jafnt sem almenning, um hið samgróna og margþætta eðli þessa sambands. Leitast er við að sýna fram á hvernig fornleifafræðileg nálgun nýtist til að afbyggja fjölda rótgróinna frásagna og hugmynda um þjóðina. Með því að afhjúpa þetta órannsakaða samband er staðalímyndum og þjóðhverfum túlkunum okkar á fortíðinni ögrað. Afhjúpuninni er ætlað að skapa svigrúm fyrir önnur rannsóknarefni og stuðla að því að íslensk fornleifafræði gangi í takt við helstu kennilegu framfarir sem orðið hafa.

Um doktorsnefnið

Angelos Parigoris er með BA-gráðu í fornleifafræði og MA-gráðu í kennilegri fornleifafræði frá Wales University í Lampeter. Auk þessa er hann með diplóma í  verkefnastjórnun í menningarlandslagsfræðum (e. cultural landscape management) frá sama háskóla. Hann starfar sem fornleifafræðingur á Íslandi og er einnig stundakennari við Háskóla Íslands.

Gavin Lucas, Ólöf Garðarsdóttir, Sverrir Jakobsson, Angelos Parigoris, Kristín Loftsdóttir og Guðmundur Hálfdanarson.