Skip to main content
27. júní 2019

Varði doktorsritgerð um ólæsilegt kvæði

Þorgeir Sigurðsson hefur varið doktorsritgerð í íslenskri málfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Hin ólæsilega Arinbjarnarkviða, varðveisla, bragform og endurgerður texti (The unreadable poem of Arinbjǫrn, preservation, meter, and a restored text) og er unnun undir leiðsögn Kristjáns Árnasonar, prófessors emeritus í íslenskri málfræði. Aðrir í doktorsnefnd voru Guðvarður Már Gunnlaugsson, Jón Axel Harðarson og Þórhallur Eyþórsson. Andmælendur við vörnina voru Matthew James Driscoll, prófessor við Árnastofnun í Kaupmannahafnarháskóla, og Klaus Johann Myrvoll, dósent við Háskólann í Stafangri. Torfi Tulinius, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands 21. júní síðastliðinn.

Um rannsóknina

Rannsóknin tekur á álitamálum um Arinbjarnarkviðu Egils Skallagrímssonar. Kviðan er aðeins varðveitt aftan við Egils sögu í Möðruvallabók og er ólæsileg með berum augum. Til eru gamlar pappírsuppskriftir eftir Möðruvallabók. Álitamál eru meðal annars um hvort kvæðið hafi allt verið skráð í Möðruvallabók, um aldur þess og um gæði textans. Leitað er svara við spurningum um þessi álitamál með endurskoðun hugmynda um elstu pappírsafskriftir, með endurskoðun kenninga um hátt kviðunnar og með nýjum fjölrásamyndum af Möðruvallabók. Segja má að heildarniðurstaða rannsóknarinnar sé að kviðan sé gömul og betur varðveitt en almennt hefur verið talið. Almennar niðurstöður eru einnig dregnar, meðal annars um hátt kviðunnar (kviðuhátt) og hvernig hann nýtir áherslulaus sérhljóð í fornu máli.

Um höfundinn

Þorgeir Sigurðsson lauk M.S.-prófi í rafmagnsverkfræði frá DTU í Kaupmannahöfn 1983. Hann lauk B.A.–prófi í íslensku frá  H.Í. 1991 og  M.A.–prófi í íslenskum fræðum frá sama skóla 2003. Á námstímanum hlaut hann styrk frá Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Hann vinnur nú ásamt Hauki Þorgeirssyni að útgáfu Snorra-Eddu fyrir Hið íslenska fornritafélag.

Hér er hægt að skoða myndir frá doktorsvörninni.

Guðmundur Hálfdanarson, Matthew James Driscoll, Þorgeir Sigurðsson, Klaus Johann Myrvoll og Torfi Tulinius.