Skip to main content
21. maí 2021

Varði doktorsritgerð um ógn eldgosa

Varði doktorsritgerð um ógn eldgosa - á vefsíðu Háskóla Íslands

Joe Wallace Walser III hefur varið doktorsritgerð í fornleifafræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, er nefnist Hidden dangers? An investigation of volcanic and environmental impacts on human health and life in historical Iceland. Andmælendur við vörnina voru dr. Anna Kjellström, dósent í fornleifafræði við Háskólann í Stokkhólmi, og dr. Mike Church, prófessor í fornleifafræði við Durham háskóla. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Steinunnar Kristjánsdóttur, prófessors við Háskóla Íslands, en auk hennar sátu í doktorsnefnd dr. Agnar Helgason, prófessor við Háskóla Íslands og dr. Rebecca Gowland, prófessor við Durham háskóla. Sverrir Jakobsson, varaforseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 20. maí síðastliðinn.

Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni.

Um rannsóknina

Eldgos geta ógnað heilsufari fólks og haft alvarleg áhrif á náttúruna, bæði meðan á þeim stendur og til langs tíma, sökum hættulegra efna og eitraðra lofttegunda sem þau losa út í umhverfið. Stór eldgos á Íslandi hafa áður verið talin hafa valdið stórfelldum búfjárdauða, hungri, breytingum á veðurfari og vatns- og loftmengun, sem hafði í kjölfarið mikil áhrif á heilsu og lífsskilyrði íbúa landsins fyrr á tíð. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hversu mikil áhrif eldsumbrotin höfðu á heilsufar fólks í gegnum aldirnar á Íslandi en um leið að skoða í sama skyni önnur mengunaráhrif í umhverfinu, til dæmis af mannavöldum (s.s. með notkun kvikasilfurs, arseniks og blýs) og vegna loftslagsbreytinga (s.s. kólnandi hitastigs á Litlu ísöld).

Í rannsókninni var margvíslegum aðferðum beitt en einkum stuðst við greiningar á beinum manna og dýra, auk jarðvegssýna. Í úrtaki hennar voru bein 186 einstaklinga frá sjö mismunandi stöðum á Íslandi sem voru í byggð allt frá 10. öld til 19. aldar. Þá voru sértækar greiningar gerðar á gögnum frá Skriðuklaustri í Fljótsdal, þar sem var klaustur og spítali á árabilinu 1493-1554, og frá Skeljastöðum í Þjórsárdal, sem lögðust í eyði í kjölfar Heklugoss árið 1104. Alls voru 36 sýni úr mannabeinum og 31 tannsýni, sem og 23 dýrabeinasýni og 13 jarðvegssýni valin til rannsóknarinnar frá Skriðuklaustri. Til samanburðar voru valin 14 beinasýni og níu jarðvegssýni frá Skeljastöðum.

Um doktorinn

Joe Wallace Walser III lauk BA-prófi í mannfræði við Temple University í Philadelphiu og MSc-prófi í fornmeinafræði við Durham University í Bretlandi. Hann starfar nú sem sérfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands.

Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, Steinunn Kristjánsdóttir, Joe Wallace Walser III og Sverrir Jakobsson.