Skip to main content
26. mars 2019

Varði doktorsritgerð um 38. kafla Jesajabókar

Jón Ásgeir Sigurvinsson hefur varið doktorsritgerð við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Sálmur Hiskía konungs sem ákall þjóðar og sáðkorn vonar. Textafræðileg greining á Jes 38.9-20. Göran Ivar Martin Eidevall og Maria Häusl voru andmælendur við vörnina og Sólveig Anna Bóasdóttir, varaforseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, stjórnaði athöfninni sem fram fór í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 4. mars síðastliðinn.

Um rannsóknina

Hinn svokallaði þakkarsálmur Hiskía konungs í 38. kafla Jesajabókar hefur löngum þótt afar erfiður viðfangs, ekki síst vegna meints bágborins varðveisluástands hans, sem hefur orðið tilefni til umfangsmikilla breytinga á textanum á grundvelli textarýni. Í rannsókninni er gerð tilraun til málfræðilegrar og bókmenntalegrar greiningar og túlkunar á byggingu sálmsins, merkingar og innra hlutverks einstakra hluta hans og tengsla þeirra hvers við annan, sem og tilgangs sálmsins í bókmenntalegu og sögulegu samhengi sínu, á grundvelli aðferðafræði við ritskýringu ljóðatexta G.t. sem Hubert Irsigler hefur sett fram á breiðum grunni málfræðilegrar og bókmenntafræðilegrar ritskýringar. Greiningin á byggingu sálmsins og því hvernig hann er felldur inn í bókmenntalegt samhengi sitt leiðir í ljós að hann er fyrst og fremst tjáning harms og framsetning bænar útlaganna í Babýlon á 6. öld f. Kr. en virkar um leið sem hvatning fyrir þá bæn og næring fyrir vonina um bænheyrslu og traustið á Jahwe með fordæminu sem bænheyrsla Hiskía og traust hans á fyrirheiti Jahwes setur.

Doktorsefnið

Jón Ásgeir Sigurvinsson lauk embættisprófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1999. Hann fór til doktorsnáms í gamlatestamentisfræðum við Albert-Ludwigs-Universität í Freiburg im Breisgau með styrk frá DAAD og dvaldi þar við nám undir leiðsögn Huberts Irsigler frá árinu 2000 til 2003.  Hann fékk styrk frá Rannís árið 2003 til þess að vinna að doktorsrannsókninni.  Jón Ásgeir hefur starfað við þýðingar og kennslu en er sem stendur settur sóknarprestur í Borgar- og Stafholtsprestaköllum.

(Sjá myndir frá doktorsvörninni).

Jón Ásgeir Sigurvinsson gengur til varnar ásamt varaforseta Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar, andmælendum og forseta Hugvísindasviðs