Skip to main content
8. janúar 2020

Tvö sóttu um starf forseta Félagsvísindasviðs

Starf forseta Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands var nýverið auglýst laust til umsóknar og rann umsóknarfrestur út 6. janúar sl. Tveir einstaklingar sóttu um starfið.  

Forseti Félagsvísindasviðs er ráðinn af rektor til fimm ára frá 1. júlí 2020. Hann starfar í umboði rektors, er yfirmaður fræðasviðsins, stýrir daglegri starfsemi og er akademískur leiðtogi þess. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skipar rektor sérstaka nefnd til að undirbúa ákvörðun um ráðningu forseta fræðasviðs og tekur nefndin til starfa á næstu dögum.  

Þau sem sóttu um starfið eru: 
1. Dr. Ásta Dís Óladóttir, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
2. Dr. Stefán Hrafn Jónsson, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands.
 

Oddi og Gimli