Skip to main content
21. febrúar 2020

Tæplega 400 brautskráð frá Háskóla Íslands á laugardag

Háskóli Íslands brautskráir 399 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi við hátíðlega athöfn í Háskólabíói laugardaginn 22. febrúar kl. 13. 

Athöfnin hefst með ávarpi Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, en í framhaldinu fer fram brautskráning nemenda af öllum fimm fræðasviðunum skólans, Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði, Hugvísindasviði, Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. 157 kandídatar taka við brautskráningarskírteini sínu frá Félagsvísindasviði, 41 frá Heilbrigðisvísindasviði, 78 frá Hugvísindasviði, 54 frá Menntavísindasviði og 69 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Samanlagt brautskrást því 398 kandídatar að þessu sinni með 401 prófgráðu. Í brautskráningarhópnum eru 250 konur og 149 karlar.

Að lokinni brautskráningu kandídata mun Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, flytja ávarp og Háskólakórinn syngur nokkur lög.

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði í Háskólabíói og eru þeir beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 12.00. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.

Frá brautskráningu Háskóla Íslands