Skip to main content
21. október 2021

Styrkur til útgáfu greinasafns um íslenskan menningararf í Vesturheimi

Styrkur til útgáfu greinasafns um íslenskan menningararf í Vesturheimi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Veittur hefur verið styrkur úr Sjóði Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli til stuðnings útgáfu The Icelandic Heritage in North America sem kemur út hjá University of Manitoba Press á þessu ári. 

Bókin Sigurtunga – Vesturíslenskt mál og menning kom út hjá Háskólaútgáfunni árið 2018. Ritstjórar eru Birna Arnbjörnsdóttir prófessor, Höskuldur Þráinsson, prófessor emeritus, og Úlfar Bragason, prófessor emeritus. 

Bókin er safn greina sem lýsa niðurstöðum nýlegra íslenskra rannsókna á máli og menningarlegri sjálfsmynd fólks af íslenskum uppruna í Vesturheimi og þróun þeirrar íslensku sem enn er töluð þar vestra. Verkefnið var styrkt af RANNÍS en styrkurinn úr Sjóði Páls Guðmundssonar er til að standa straum af útgáfu greinasafnsins fyrir enskumælandi áhugamenn um íslenska menningararfinn í Vesturheimi. Greinar bókarinnar hafa verið aðlagaðar að enskumælandi lesendum og nýjum greinum bætt við og kemur hún út undir titlinum The Icelandic Heritage in North America.

Vesturíslenska er svokallað erfðamál en svo nefnast þau mál sem innflytjendur og afkomendur þeirra tala í samfélagi þar sem annað mál er ríkjandi. Rannsóknir á eðli og örlögum slíkra mála hafa notið vaxandi athygli víða um heim vegna framlags þeirra til þekkingar á þróun tungumála við misjafnar aðstæður. Bókin er framlag til þeirra fræða. 

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reed rita formála. 

Um sjóðinn

Tilgangur sjóðsins er að efla tengsl milli Háskóla Íslands og Háskólans í Manitoba í Kanada m.a. með því að veita stúdentum og fræðimönnum annars skólans styrki til rannsókna eða náms við hinn skólann eða til verkefna sem falla að tilgangi sjóðsins með öðrum hætti.

Sjóðurinn er byggður á gjöf Páls Guðmundssonar frá Rjúpnafelli til Háskóla Íslands árið 1971 skv. erfðaskrá hans. Páll var fæddur 26. júní 1887 og var bóndi í Saskatchewan í Kanada. Páll lést 11. maí árið 1966. 

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem Háskóla Íslands hafa verið ánafnaðar allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. 

Jón Atli Benediktsson og Höskuldur Þráinsson