Skip to main content
5. desember 2017

Styrkur til rannsóknar og námsstyrkir til blindra og sjónskertra

Rannsókn sem miðar að því að kanna reynslu blindra og sjónskertra kvenna af ofbeldi og nauðung hlaut styrk úr Þórsteinssjóði við Háskóla Íslands 4. desember sl. Við sama tilefni fengu fjórir blindir og sjónskertir stúdentar við Háskóla Íslands styrk úr sjóðnum til náms. Þetta er í áttunda skipti sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum og nemur upphæð styrkjanna  samtals þremur milljónum króna. 

Megintilgangur Þórsteinssjóðs er að styrkja blinda og sjónskerta stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Enn fremur er sjóðnum ætlað að efla rannsóknir sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn og afleiðingum hennar og fjölga þannig tækifærum blindra og sjónskertra til að auðga og efla líf sitt. Sérstök áhersla er lögð á styrki til rannsókna í félags- og hugvísindum sem falla að tilgangi sjóðsins. 

Námsstyrki í ár hljóta fjórir nemendur sem fyrr segir, þær Ásdís Lilja Guðmundsdóttir, MS-nemi í klínískri næringarfræði, Hekla Dögg Ásmundsdóttir, MA-nemi í félagsráðgjöf, Rósa María Hjörvar, doktorsnemi í almennri bókmenntafræði, og Vala Ósk Ólafsdóttir, BA-nemi í félagsráðgjöf. Þá hlaut Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, doktorsnemi í fötlunarfræðum, styrk til rannsóknar á reynslu blindra og sjónskertra kvenna sem búa á stofnunum og sértækum búsetuúrræðum. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti styrkina við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu.

Markmið verkefnis Hrafnhildar er að kanna með hvaða hætti viðteknir starfshættir innan stofnana og sértækra búsetuúrræða tengjast nauðung og ofbeldi sem blindar og sjónskertar konur verða fyrir. Enn fremur verður rýnt í hvernig aðgengi kvennanna að stuðningi og réttindagæslu er háttað. Í rannsókninni verður lögð áhersla á náið samstarf við fatlaðar konur svo að niðurstöður endurspegli upplifun þeirra og reynsluheim. Rannsóknin er hluti af doktorsrannsókn Hrafnhildar sem fjallar um ofbeldi gegn fötluðum konum og tengsl þess við félagslega stöðu fatlaðra kvenna og jaðarsetningu. 

Undanfarin ár hefur Háskóli Íslands lagt áherslu á að efla tækifæri blindra og sjónskertra nemenda jafnt sem annarra fatlaðra einstaklinga til náms við skólann og samhliða unnið að því að tryggja að þeir njóti jafnræðis á við aðra nemendur. Þórsteinssjóður styður sannarlega við þau markmið. 

Sjóðurinn var stofnaður af Blindravinafélagi Íslands 6. desember 2006 og er sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis en tilkoma hans eykur möguleika blindra og sjónskertra stúdenta til háskólanáms. Hlutverk og tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins Bjarnasonar sem fæddist 3. desember árið 1900. Hann stofnaði Blindravinafélag Íslands 24. janúar 1932 og var það fyrsti vísir að félagi til hjálpar fötluðu fólki hér á landi. Þórsteinn helgaði líf sitt blindum og sjónskertum einstaklingum á Íslandi á síðustu öld án þess að þiggja nokkru sinni laun fyrir heldur lagði félaginu þvert á móti til fé úr eigin vasa.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið skólanum allt frá stofnun hans. Flestir þeirra starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.

Styrkþegarnir fimm í Norræna húsinu að lokinni afhendingu styrkjanna.
Styrkþegar ásamt rektor Háskóla Íslands og stjórn Þórsteinssjóðs.