Skip to main content
29. október 2018

Styrkur til rannsókna í félagsráðgjöf

""

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Sigrúnarsjóði. Styrkir eru veittir til nemenda í framhaldsnámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands (doktorsnámi, meistaranámi) og/eða til rannsókna innan háskólans sem samræmist tilgangi og markmiði sjóðsins. 

Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember 2018.

Meginmarkmið Sigrúnarsjóðs er að efla rannsóknir og doktorsnám ásamt sérfræðiþekkingu í félagsráðgjöf með því að veita fjárstyrki til:
   a)   doktorsverkefna í félagsráðgjöf sem snerta  málefni barna og fjölskyldna.
   b)   frumrannsókna, þ.e. rannsókna sem fela í sér nýsköpun þekkingar á sviðinu.
   c)   þróunar aðferða á sérsviðum sem varða hagsmuni barna og fjölskyldna.
   d)   þróunar- og tilraunaverkefna sem efla fræðilegt og faglegt framlag á sviðinu.
   e)   fræðsluverkefna á sérsviðum félagsráðgjafar sem varða hagsmuni barna og fjölskyldna.
 
Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er allt að kr. 500.000. 

Í umsókninni þurfa eftirtalin atriði að koma fram: 
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
2.    Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá umsækjanda og upplýsingar um námsárangur.
3.    Heiti rannsóknarverkefnis, markmið og vísindalegt gildi. Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, 2-3 málsgreinar, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar hljóti verkefnið styrk. 
4.    Veigameiri lýsing á rannsóknarverkefninu, ein blaðsíða að hámarki. Fram komi hvernig verkefninu er ætlað að auka við núverandi þekkingu á efninu og hvernig verkefnið samræmist markmiðum sjóðsins. Sé ætlunin að óska eftir stuðningi við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um.
5.    Áætlun um námsframvindu, tímaáætlun, fjárhagsáætlun og yfirlit yfir helstu samstarfsaðila í verkefninu. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning við verkefnið komi einnig fram.
6.    Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.

Gert er ráð fyrir því að styrkþegi skili sjóðnum greinargerð um stöðu verkefnisins innan árs frá afhendingu styrks. 

Hámarkslengd umsóknar er þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is. Áætlað er að úthlutað verði í byrjun árs 2019.

Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is, á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is, eða hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.

""