Skip to main content
7. mars 2018

Styrkur til meistaranema í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, Garðar Hilmarsson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (St.Rv.), og Ingi Rúnar Eðvarðsson, deildarforseti Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, skrifuðu undir samning þann 6. mars þess efnis að veita einum meistaranema styrk til að vinna lokaverkefni sem tekur mið af málefnum sem tengjast könnuninni Stofnun ársins. Þar á meðal eru mannauðsstjórnun, samskipti á vinnustað og vinnuréttur. Styrkupphæð er 750.000 kr. sem dreifist á þrjá mánuði. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að umsækjandi sé búinn með a.m.k. 30 ECTS-einingar í meistaranámi.

Árlega standa SFR, stéttarfélag í almannaþjónustu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar fyrir vali á Stofnun ársins. Eitt af markmiðum með vali á Stofnun ársins er að koma af stað umræðu um og bæta starfskjör og starfsskilyrði félagsmanna SFR og St.Rv. ásamt því að láta félagsmönnum í té upplýsingar um starfsumhverfi stofnana svo þeir geti borið stöðu sína saman við stöðu mála á sambærilegum vinnustöðum. Könnunin gefur mjög góða mynd af starfsumhverfi og starfsaðstæðum starfsmanna hjá hinu opinbera.

Skipuð hefur verið sérstök nefnd sem mun velja einn meistaranema úr hópi umsækjenda. Nefndina skipa þau Jóhanna Þórdórsdóttir, fræðslustjóri SFR, Guðmundur Freyr Sveinsson, sérfræðingur á kjarasviði St.Rv., og Ásta Dís Óladóttir, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2018.

Tilkynnt verður um hver hlýtur styrkinn á málþingi um mannauðsmál hjá hinu opinbera þann 9. maí en þann dag er einnig tilkynnt um hver hlýtur titilinn Stofnun ársins 2018. Í umsókninni þarf að koma fram ítarleg greinargerð um rannsóknarviðfangsefni og rannsóknarspurningu.

Við yfirferð umsóknar er horft til notagildis rannsóknarinnar, hvert fræðilegt og hagnýtt gildi hennar er og hvernig hún getur nýst í þá veru að bæta starfsumhverfi þeirra starfsmanna sem eru félagsmenn í SFR og St.Rv.

Umsókn skal senda á Ástu Dís Óladóttir á netfangið vidskipti@hi.is 

Garðar Hilmarsson formaður St.Rv., Ingi Rúnar Eðvarðsson deildarforseti Viðskiptafræðideildar og Árni Stefán Jónsson formaður SFR.