Skip to main content
28. nóvember 2016

Styrkur til doktorsnáms í lögfræði

Lagadeild Háskóla Íslands vekur athygli á einstöku tækifæri til þess að stunda doktorsnám við Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla og Lagadeild Háskóla Íslands sem lýkur með sameiginlegri doktorsgráðu (Joint Ph.D. Degree) frá báðum deildum. Við það er miðað að námið takið þrjú ár, þar af tvö við Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla og eitt við Lagadeild Háskóla Íslands, og hefjist á haustmisseri 2017. Styrkur til námsins miðast við þriggja ára nám.

Umsóknafrestur er til 17. janúar 2017. Sótt er um með rafrænum hætti.

Nánari upplýsingar um sameiginlega doktorsnámið er að finna á heimasíðu Kaupmannahafnarháskóla og heimasíðu Lagadeildar Háskóla Íslands.

Þeir sem hafa áhuga geta einnig haft samband við dr. Aðalheiði Jóhannsdóttur, prófessor og deildarforseta Lagadeildar Háskóla Íslands (deildarforsetilag@hi.is), og Valgerði Sólnes, lögfræðing og doktorsnema í sameiginlega doktorsnáminu (valgerdur.solnes@jur.ku.dk).

Lögberg
Lögberg