Skip to main content
5. október 2021

Styrkir til vísindafræða úr sjóðnum Vísindum og velferð

Styrkir til vísindafræða úr sjóðnum Vísindum og velferð - á vefsíðu Háskóla Íslands

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Vísindum og velferð: Styrktarsjóði Sigrúnar og Þorsteins á árinu 2021. Í þetta sinn verða veittir fjárstyrkir til rannsókna og verkefna á sviði vísindafræða, nánar tiltekið vísindasögu, vísindaheimspeki og vísindamiðlunar. Styrkirnir eru einkum ætlaðir:

a) nemendum í framhaldsnámi í vísindafræðum við íslenska háskóla,
b) fræðimönnum til rannsókna og ritstarfa í vísindafræðum,
c) öllum sem vinna að nýjungum í vísindamiðlun sem styrkja stöðu vísinda og vísindalegrar hugsunar meðal almennings í landinu.

Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2021.

Nánari upplýsingar um sjóðinn og tilgang hans er að finna á vef hans.

Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja að þessu sinni er allt að kr. 5.000.000.

Í umsókn þurfa eftirtalin atriði að koma fram: 
1.    Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
2.    Heiti verkefnis og markmið.
3.    Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, 2-3 málsgreinar, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk. 
4.    Ferilskrá umsækjanda.
5.    Veigameiri lýsing á verkefninu, ein blaðsíða að hámarki. Ef um rannsóknir er að ræða komi fram hvernig verkefninu er ætlað að auka við núverandi þekkingu á efninu og hvernig verkefnið samræmist markmiðum sjóðsins. Sé ætlunin að óska eftir stuðningi við hluta af stærra verkefni skal koma fram til hvaða þáttar sótt er um styrk.
6.    Tímaáætlun ásamt fjárhagsáætlun og, ef við á, yfirlit yfir helstu samstarfsaðila í verkefninu. Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning við verkefnið komi einnig fram.
7.    Nöfn, símanúmer og netföng þeirra sem leita má til um meðmæli.

Gert er ráð fyrir því að styrkþegi skili sjóðnum greinargerð um framgang og stöðu verkefnis innan árs frá afhendingu styrks. 

Hámarkslengd umsóknar er þrjár blaðsíður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum umsóknum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands, sjodir@hi.is. Áætlað er að úthlutað verði í nóvember 2021.

Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun eru á sjóðavef Háskóla Íslands eða hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.

Um sjóðinn

Sjóðurinn Vísindi og velferð var stofnaður við Háskóla Íslands árið 2021. Stofnendur sjóðsins eru hjónin Sigrún Júlíusdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson. Sigrún er fyrrverandi prófessor í félagsráðgjöf og hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar, rannsókna og fræða í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og stofnandi Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd. Þorsteinn er fyrrverandi prófessor í eðlisfræði og vísindasögu, stofnandi og fyrsti ritstjóri Vísindavefsins og hefur verið brautryðjandi í vísindafræðum við skólann. 

""