Skip to main content
16. september 2019

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum

Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur árið 2019. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og njóta nemendur við Háskóla Íslands forgangs. Heildarupphæð styrkja er 900.000 krónur.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til og með 7. október 2019.

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á sjóðavef HÍ .

Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnarinnar, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústsdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins.

Þetta er í tólfta sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007.

Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur var stofnaður 29. júní 2007 af Ingibjörgu R. Magnúsdóttur auk Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Landspítalans. Ingibjörg er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0596-26-1760. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199. Mikilvægt er að merkja greiðsluna nafni sjóðsins.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is, sími 525-4987/525-4960 og Helga Brá Árnadóttir, verkefnastjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is.

Nemendur og kennarar í hjúkrunarfræði