Skip to main content
17. apríl 2019

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum

nemendur í ljósmóðurfræði

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur árið 2019. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og njóta nemendur við Háskóla Íslands forgangs. Heildarupphæð styrkja er 950.000 krónur.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til og með 22. maí 2019. 

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Hjúkrunarfræðideildar og heimasíðu sjóðsins á sjóðavef HÍ.

Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild, sem er formaður, Stefán Bragi Bjarnason, lögfræðingur sem er fulltrúi Ingibjargar R. Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústsdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins.

Þetta er í ellefta sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. 

Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins, er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu hans.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti, t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is, sími 525-4987/525-4960 og Helga Brá Árnadóttir, verkefnastjóri Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is

Rannsóknsjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur við Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum