Skip to main content
31. ágúst 2017

Styrkir til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum

Hjartalínurit.

Ákveðið hefur verið að veita styrki úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur og er stefnt að úthlutun í lok september 2017. Um er að ræða styrki til doktorsnema í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og njóta nemendur við Háskóla Íslands forgangs. Heildarupphæð styrkja er 300.000 krónur.

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.

Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 11. september 2017. 

Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu sjóðsins.

Val á styrkhöfum er í höndum stjórnarmanna en stjórn sjóðsins skipa Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnarinnar, Stefán Bragi Bjarnason lögfræðingur, fulltrúi Ingibjargar R Magnúsdóttur, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, fulltrúi Ljósmæðrafélags Íslands, Auðna Ágústsdóttir, fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Dagmar Huld Matthíasdóttir, fulltrúi velferðarráðuneytisins.

Þetta er í tíunda sinn sem styrkur er veittur úr Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur en sjóðurinn var stofnaður sem einn af Styrktarsjóðum Háskóla Íslands í júlí árið 2007. Styrkhafar árið 2016 voru hjúkrunarfræðingarnir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir og Guðrún Jónsdóttir.

Ingibjörg R. Magnúsdóttir, stofnandi sjóðsins, er fyrrverandi námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Hún hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar á Íslandi og var ein þeirra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands árið 1973.

Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna á heimasíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands.

Hægt er að styrkja sjóðinn með ýmsu móti t.d. með gjöfum í tilefni árgangaafmæla eða útskriftar. Einnig er hægt að senda minningarkort og tækifæriskort frá sjóðnum. Fjárhæðir má leggja inn á eftirfarandi bankareikning hjá Íslandsbanka: 0513-26-004057. Kennitala Styrktarsjóðanna HÍ er 571292-3199.

Frekari upplýsingar um styrki og styrkveitingar veitir Jóhanna Bernharðsdóttir, formaður stjórnar, johannab@hi.is, sími 525-4987/525-4960 og Helga Brá Árnadóttir, helgab@hi.is
 

Ljósmæðranemar að störfum