Skip to main content
18. október 2017

Skráning hafin á ráðstefnu um læsi á leik- og grunnskólastigi

Skráning hafin á ráðstefnu um læsi á leik- og grunnskólastigi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Menntamálastofnun og Menntavísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir ráðstefnunni Lestur er lykill að ævintýrum þann 18. nóvember við Háskóla Íslands í Stakkahlíð. Ráðstefnunni er ætlað að skapa vettvang fyrir sérfræðinga, fræðimenn og kennara til að kynna verkefni er lúta að læsi á leik- og grunnskólastigi.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða R. Malatesha Joshi, doktor í lestrar- og móðurmálskennslu við Texas-háskóla í Austin, Rannveig Oddsdóttir, sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri, og Sólveig Zophoníasdóttir, sérfræðingur við sömu stofnun.

Auk aðalfyrirlestra verða á dagskrá tólf málstofur þar sem m.a. verður greint frá læsi í leikskólum, samstarfi við foreldra, mikilvægi orðaforða, viðhorfi barna til lestrar og ýmsum árangursríkum aðferðum í námi og kennslu.

Setning ráðstefnunnar er í höndum Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands.

Ráðstefnustjóri verður Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar.

Dagskrá

08:30 Ráðstefnugögn afhent

09:00 Setning ráðstefnu – Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands

09:15 Aðalerindi – Application of the Componential Model of Reading for Assessment and Intervention – R. Malatesha Joshi

10:15 Kaffi

10:30 Málstofur

12:00 Matur

12:50 Aðalerindi – Samræður til náms – Sólveig Zophoníasdóttir

13:20 Aðalerindi – Læsisstefna í lærdómssamfélagi – Rannveig Oddsdóttir

14:00 Málstofur

15:30 Ráðstefnuslit

Skráning fer fram á vef Menntavísindastofnunar.

Ráðstefnugjald er 12.500 kr. og er matur innifalinn í verði.

Viðburðurinn á Facebook

Börn í röð