Skip to main content
12. maí 2021

Skráning hafin á Menntakviku

Skráning hafin á Menntakviku - á vefsíðu Háskóla Íslands

Opnað hefur verið fyrir skráningu og móttöku ágripa fyrir árlega ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands; Menntakvika – rannsóknir, nýbreytni og þróun, sem haldin verður 15. október í ár. Í ár á ráðstefnan aldarfjórðungsafmæli.

Menntakviku er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni. Í fyrra voru öll met slegin í fjölda innsendra ágripa og flutt voru rúmlega 300 erindi um fjölbreytt efni í fleiri en 80 málstofum. Ráðstefnan var í fyrsta skiptið alfarið rafræn og áheyrendur fleiri en nokkru sinni fyrr. Stefnt er að því að halda ráðstefnuna í október í húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð.

Á dagskrá ráðstefnunnar verða sem áður bæði málstofur og veggspjaldasýningar, auk þess að mögulegt er að halda skipulagðar hringborðsumræður. Eins og fyrri ár verður áhersla lögð á heildstæðar málstofur frá rannsóknarstofum eða -hópum

Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum, og tengdum sviðum, við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni.

Skráning er hafin, eins og fyrr segir, og búið er að opna fyrir móttöku ágripa. Skilafrestur ágripa er til miðnættis 30. júní 2021. Undirbúningur og framkvæmd Menntakviku er í höndum Menntavísindastofnunar. 

Vinsamlegast sendið inn ágrip hér.

Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis.

Sjá nánar á vef Menntakviku.

Menntakvika verður haldin í 25. sinn þann 15. október. Opnað hefur verið fyrir skráningu og móttöku ágripa. MYND/ Kristinn Ingvarsson