Skip to main content
22. apríl 2018

Skráning hafin á Menntakviku

Opnað hefur verið fyrir skráningu og móttöku ágripa fyrir árlega ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands; Menntakvika – rannsóknir, nýbreytni og þróun, sem haldin verður 12. október í ár. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni. 

Í fyrra voru flutt 210 erindi um fjölbreytt efni í 56 málstofum. Skipulag ráðstefnunnar verður með svipuðu sniði og undanfarin ár og sérstök áhersla verður lögð á heildstæðar málstofur frá rannsóknarstofum eða -hópum. Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða sem fyrr bæði málstofur og veggspjaldasýningar. Í ár er einnig opið fyrir möguleikann á að halda skipulagðar hringborðsumræður.

Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og tengdum sviðum við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni en jafnframt starfsfólki frá stofnunum utan háskólans. Undirbúningur og framkvæmd Menntakviku er í höndum Menntavísindastofnunar. 

Skráning er hafin, eins og fyrr segir, og búið er að opna fyrir móttöku ágripa. Skilafrestur ágripa er til miðnættis 10. júní 2018. 

Fyrir utan að vera uppspretta nýrra hugmynda og þekkingar er ráðstefnan vettvangur mikilvægrar umræðu um menntamál ár hvert.

Vinsamlegast sendið inn ágrip hér.

Ráðstefnan er endurgjaldslaus og öllum opin.

Sjá nánar á vef Menntakviku.

Hátt í þúsund manns sóttu Menntakviku í fyrra. Nýsjálenski fræðimaðurinn dr. Zachary Walker var á meðal fyrirlesara og hélt vel heppnaðar vinnustofur með kennurum.