Skip to main content
2. júlí 2018

Skráning hafin á 19. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnuna

Opnað hefur verið fyrir móttöku ágripa og skráningu á 19. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnu Háskóla Íslands. Ráðstefnan fer fram á Háskólatorgi dagana 3. og 4. janúar 2019. Þar hittast tæplega 1000 þátttakendur og kynna sér það sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum á Íslandi hverju sinni. Það er ókeypis á ráðstefnuna og hún er opin öllum innan HÍ og utan. 

Á dagskrá ráðstefnunnar verða málstofur, veggspjaldasýningar,  spennandi gestafyrirlesarar og opnir fyrirlestrar fyrir almenning. Sérstök áhersla verður lögð á að málstofur á ráðstefnunni verði þverfræðilegar til þess að tengja saman vísindafólk úr ólíkum greinum. Einnig verður boðið upp á málstofur á ensku. 

Heilbrigðisvísindasvið býður öllum þeim sem stunda rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum að senda inn ágrip á ráðstefnuna. Skilafrestur ágripa er til 1. október 2018.

Skráning, skil ágripa og nánari upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar: lifogheil.hi.is

Ráðstefnan fór síðast fram í ársbyrjun 2017 og var ein sú fjölsóttasta frá upphafi. Þar voru 290 rannsóknir til umfjöllunar og viðfangsefni þeirra af ólíkum toga úr flestum greinum líf- og heilbrigðisvísinda. 

Undirbúningur og framkvæmd 19. ráðstefnunnar er í höndum skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs og sérstakrar ráðstefnunefndar. Í nefndinni sitja Kristín Ingólfsdóttir, formaður og prófessor við Lyfjafræðideild, Berglind Hálfdánsdóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild, Björn Viðar Aðalbjörnsson, lektor við Matvæla- og næringarfræðideild, Einar Stefán Björnsson, prófessor við Læknadeild, Erna Rún Einarsdóttir, lektor við Tannlæknadeild, Heiða María Sigurðardóttir, lektor við Sálfræðideild og Thor Aspelund, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum.

Áheyrendur á fyrirlestri