Skip to main content
10. apríl 2018

Samstarf við Ráðstefnuborgina Reykjavík um alþjóðlega fundi

""

Mánudaginn 9. apríl var handsalaður samningur milli Ráðstefnuborgarinnar Reykjavíkur (Meet in Reykjavík), Háskóla Íslands (HÍ), Háskólans í Reykjavík (HR) og Listaháskóla Íslands (LHÍ) sem hefur það að markmiði að fjölga alþjóðlegum akademískum fundum og ráðstefnum á vegum háskólanna hér á landi. 

Rektorar háskólanna þriggja, Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ,  Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, og Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, undirrituðu samninginn ásamt Þorsteini Erni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Meet in Reykjavík, og Degi B. Eggertssyni, borgarstjóranum í Reykjavík. 

Meet in Reykjavík mun aðstoða starfsfólk háskólanna og samstarfsaðila þeirra við undirbúning, upplýsingaöflun og tilboðsgerð fyrir alþjóðlega fundi og ráðstefnur sem tengjast háskólunum með einhverjum hætti. Þá mun Meet in Reykjavík veita upplýsingar og halda kynningar um funda- og ráðstefnuaðstöðu háskólanna fyrir alþjóðleg samtök og skipuleggjendur funda og ráðstefna.

Þorsteinn Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík, segir samninginn mikilvægt skref í að efla Reykjavík sem alþjólega ráðstefnuborg. „Við höfum átt ágætt samstarf við háskólana undanfarin ár en nú viljum við setja aukinn kraft í samstarfið og fara í markvissari leit að verkefnum sem henta áfangastaðnum og háskólasamfélaginu hér á landi.“ 

Á blaðamannafundi sem haldin var í tilefni undirskriftarinnar kom fram að á undanförnum árum hafi Ísland mótað sér ákveðna sérstöðu í jafnréttismálum, jarðvarma og málefnum norðurslóða. Þetta hafi meðal annars skilað sér í auknum áhuga á funda- og ráðstefnuhaldi tengdum þessum málaflokkum hér á landi. Ísland hafi burði til þess að taka forystu í fleiri málaflokkum og samningurinn sé liður í því. Akademískar ráðstefnur séu öflug leið til þess vekja athygli á rannsóknarstarfi háskólanna, styrkja orðspor þeirra og mynda tengsl við erlenda fræðimenn. Þá hafa akademískar ráðstefnur vægi þegar kemur að uppröðun háskóla á alþjóðlega samanburðalista.     

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Þorsteinn Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík. 
Frá vinstri: Ari Kristinn Jónsson, Þorsteinn Örn Guðmundsson, Fríða Börk Ingvarsdóttir, Jón Atli Benediktsson og Dagur B. Eggertsson.