Skip to main content
31. ágúst 2018

SÁLRÆKT - hópmeðferð fyrir háskólanema

Sálfræðiráðgjöf háskólanema mun í vetur bjóða upp á hópmeðferð fyrir nema sem vilja leysa úr sálrænum vanda og bæta geðheilsu sína. Þrír sálfræðingar og forstöðumaður ráðgjafarinnar munu leiðbeina í meðferðinni. Á skólaárinu 2018-2019 verða hópfundir haldnir vikulega á föstudögum, kl. 13-14.30. 

Áhugasamir geta sent póst á hopmedferd@hi.is með nafni sínu og símanúmeri til að sækja um þátttöku. Í framhaldinu hafa fulltrúar frá sálfræðiráðgjöfinni samband og boða viðkomandi til inntökuviðtals. Athugið að þátttökufjöldi er takmarkaður en þátttakendur útskrifast þegar þeir hafa náð markmiðum sínum og þá opnast pláss fyrir nýja þátttakendur. Hópmeðferðin er tilraunaverkefni og veitt ókeypis.

Nánari upplýsingar um SÁLRÆKT má finna á vefsíðu Sálfræðideildar.

Sálfræðiráðgjöf háskólanema hefur verið starfrækt frá árinu 2013. Markmið hennar er tvíþætt, að þjálfa framhaldsnema í sálfræði í klínískum störfum og veita bæði háskólanemum og börnum þeirra sálfræðiþjónustu gegn afar vægu gjaldi. Frá upphafi hafa rúmlega 100 sálfræðinemar hlotið þar starfsþjálfun og skipta málin sem komið hafa til kasta þeirra hundruðum. Við Sálfræðiráðgjöf háskólanema er fengist við vanda af ýmsu tagi, t.d. kvíða, depurð, frestanahneigð, fullkomnunaráráttu, lágt sjálfsmat, svefntruflanir, félagsfælni og fleira.

Nánari upplýsingar um Sálfræðiráðgjöf háskólanema er á vef Háskóla Íslands.

""