Skip to main content
20. janúar 2022

Sálrækt áfram í boði á vormisseri

Sálrækt áfram í boði á vormisseri - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nemendum við Háskóla Íslands býðst að sækja Sálrækt - hópmeðferð ókeypis í vetur og hefst hún á ný eftir jólafrí þann 27. janúar.

Umræðum í hópmeðferðinni er ætlað að hjálpa nemendum að fást við erfiðleika í hversdagslífinu sem geta spannað allt frá fjölskyldu, skóla og persónulegum málum til samskipta. Veitt er fræðsla og stuðst við viðurkennda hugmyndafræði, hugræna tilfinninga- og atferlismeðferð (e. Rational Emotive Behavior Therapy). 

Hópfundir verða haldnir í Suðurbergi, sem er stofa á þriðju hæð í Setbergi, húsi kennslunnar við HÍ. Fundað verður vikulega á fimmtudögum kl. 14-15.30 og verður fyrist fundur á vorönn þann 27. janúar. 

Dr. Gunnar Hrafn Birgisson, klínískur sálfræðingur, leiðbeinir (www.gunnarbirgisson.com)

Áhugasöm sendi póst á netfangið salraekt@gmail.com með nafni og símanúmeri.

Athugið að þátttökufjöldi er takmarkaður. Þau fyrstu sem sækja um komast að fyrst og af biðlista komast svo önnur að eftir röð. 

Sálrækt