Skip to main content
19. nóvember 2018

Sagafilm hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2018

""

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra veitti Sagafilm Hvatningarverðlaun jafnréttismála árið 2018 á fundi um jafnréttismál sem haldinn var í Háskóla Íslands í morgun. Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sagafilm, og Hrönn Þorsteinsdóttir, fjármála- og starfsmannastjóri fyrirtækisins, veittu Hvatningarverðlaununum viðtöku. Markmiðið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála, sem nú eru veitt í fimmta sinn, er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem hafa jafnrétti að leiðarljósi í starfsemi sinni og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem hefur stuðlað að jöfnum möguleikum kynjanna til starfsframa, jöfnum launum, jafnvægi í kynjahlutföllum og aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Háskóli Íslands og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð standa að Hvatningarverðlaunum jafnréttismála og er landsnefnd UN Women á Íslandi sérstakur samstarfsaðili. 

Í áliti dómnefndar um Sagafilm segir: „Árangur fyrirtækisins í jafnréttismálum ber þess merki að stjórnendur hafa sett skýr markmið og óhikað hrundið þeim í framkvæmd. Sagafilm starfar í geira þar sem karlar hafa verið ráðandi og því nauðsynlegt að hafa einbeittan vilja til að breyta því. Meðvitaðar ákvarðanir hefur þurft til að tefla fram kvenkyns leikstjórum og handritshöfundum. Ákvarðanir hafa síðan áhrif á framleiðslu fyrirtækisins þar sem glöggt má sjá að hlutur kynjanna hefur jafnast og konur fengið aukið vægi. Sögurnar sem sagðar eru spegla þannig betur en áður raunveruleikann. Sagafilm hlaut jafnlaunavottun fyrr á þessu ári og kynjahlutföll meðal starfsfólks eru jöfn. Fyrirtækið hefur ekki einungis beint jafnréttisgleraugunum að starfsfólki sínu og eigin starfsemi heldur einnig að aðkeyptri þjónustu sem er hluti af virðiskeðju sjónvarps- og kvikmyndagerðarinnar. Fyrirtækið er með færri fasta starfsmenn en fyrri verðlaunahafar og hefur því þurft að nálgast jafnrétti kynjanna öðruvísi en mörg önnur. Með markvissum aðgerðum og einbeittum vilja hefur fyrirtækið þó sýnt að mögulegt er að takast á við ríkjandi kynjakerfi. Snarpir vindar hafa blásið um jafnréttisumræðuna að undanförnu og gert að verkum að við höfum þurft að staldra við og endurskoða gamalgróin viðhorf. Sú umræða spratt í borg englanna, heimahöfn alþjóðlega kvikmyndageirans. Það er því einstaklega ánægjulegt og til marks um breyttar áherslur í geiranum, að viðurkenninguna að þessu sinni hljóti fyrirtæki sem sé leiðandi á því sviði.“ 

Dómnefnd var skipuð að þessu sinni Helga Lára Haarde, formaður dómnefndar, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Þorsteinn Kári Jónsson frá Festu, Arnar Gíslason frá Háskóla Íslands og Bergþóra Halldórsdóttir frá Samtökum atvinnulífsins.

Fleiri myndir Ólafs Más Svavarssonar frá athöfninni 

Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm, og Hrönn Þorsteinsdóttir, starfsmannastjóri sviðsins, tóku við Hvatningarverðlaunum jafnréttismála, úr hendi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur.