Skip to main content
21. apríl 2020

Sæmundargata við Gamla Garð lokuð næstu tvær vikur

Vegna framkvæmda við stækkun Gamla Garðs verður Sæmundargötu fyrir neðan stúdentagarðinn lokað frá og með þriðjudeginum 21. apríl og í um tvær vikur. Um er að ræða verklið í framkvæmdinni sem hefur verið flýtt vegna samkomubanns og mjög lítillar umferðar á svæðinu.

Lokunin þýðir að ekki verður hægt að beygja inn á Sæmundargötu af Hringbraut né inn á Hringbraut af Sæmundargötu. Hjáleiðir inn á og út af háskólasvæðinu eru um Njarðargötu og Sturlugötu annars vegar og Suðurgötu og Eggertsgötu hins vegar á meðan á framkvæmdum stendur.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 
 

Loftmynd sem sýnir lokun Sæmundargötu.