Skip to main content
4. júní 2021

Rúmlega fjögur hundruð þreyta inntökupróf í Læknadeild

Rúmlega fjögur hundruð þreyta inntökupróf í Læknadeild - á vefsíðu Háskóla Íslands

Rúmlega fjögur hundruð þátttakendur hafa skráð sig í inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði við Læknadeild Háskóla Íslands sem fer fram dagana 10. og 11. júní, eða samtals 415. Það eru 28 þátttakendum færri en í fyrra.

Alls munu 333 þreyta inntökupróf í læknisfræði og fækkar þeim um ellefu milli ára. Þá sækja 82 manns um inntöku í sjúkraþjálfunarfræði eða sautján færri en í fyrra. Sama próf er lagt fyrir alla þátttakendur og þeir sem standa sig best á prófinu eiga kost á að hefja nám.

Fjöldi þeirra sem hefur nám miðast við afkastagetu sjúkrahúsanna við verklega þjálfun nemenda. Í læknisfræði verða teknir inn 60 nemendur og 35 nemendur í sjúkraþjálfunarfræði.

Inntökuprófið fer fram í húsnæði Menntaskólans við Hamrahlíð. Inntökuprófið tekur tvo daga líkt og áður og samanstendur af sex tveggja tíma próflotum. Grímuskylda verður á prófstað.

Þess má geta að þeir sem fara í prófið en komast ekki inn í Læknadeild geta skráð sig í aðrar deildir Háskóla Íslands fram til 20. júlí.

Almennar upplýsingar um inntökuprófið.