Skip to main content
20. ágúst 2018

Rektor verðlaunaður fyrir framúrskarandi framlag til fjarkönnunar

""

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hlýtur verðlaun alþjóðlegu samtakanna IEEE Geoscience and Remote Society (GRSS) árið 2018 fyrir framúrskarandi framlag sitt til rannsókna á sviði fjarkönnunar.

Verðlaunin eru kennd við David Landgrebe, einn helsta frumkvöðul í greiningu fjarkönnunarmynda, og verða afhent á ráðstefnununni IEEE Whispers sem GRSS stendur fyrir í samtarfi við fleiri fagfélög á sviði fjarkönnunar í Amsterdam í september. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til greiningar fjarkönnunarmynda við m.a. flokkun, myndgreiningu, útdrátt sérkenna, mat á breytingum og gagnanám. Til þess að eiga möguleika að hljóta verðlaunin þurfa vísindamenn að hafa verið framúrskarandi í rannsóknum á fjarkönnunarmyndum á síðustu árum og greint frá niðurstöðum sínum í tímaritum og ráðstefnum á vegum GRSS.

Fjarkönnun felst m.a. í því að taka stafrænar myndir úr flugvélum og gervitunglum og fjarkönnunarrannsóknir ganga út á að þróa aðferðir til að draga fram upplýsingar úr slíkum myndum ásamt því að safna og vinna úr fjarkönnunargögnum. Fjarkönnun býður upp á að fylgjast með stórum svæðum sem oft eru fjarri mannabyggðum. Þessi tækni skiptir Íslendinga mjög miklu máli, m.a. við rannsóknir á gróðurþekju, jöklum, eldfjöllum, stöðuvötnum og hafinu umhverfis landið. Vísindamenn og nemendur við Háskóla Íslands hafa lagt mikla áherslu á rannsóknir tengdar fjarkönnun og að þróa nýjar aðferðir við úrvinnslu fjarkönnunarmynda. Þess má geta að Háskóli Íslands mældist á síðasta ári í allra fremstu röð háskóla í heiminum í fjarkönnun samkvæmt röðun Shanghai Rankings.

„Það er mér mikill heiður og hvatning að hljóta David Landgrebe verðlaunin. Ég vil þakka stórum hópi samstarfsfólks og nemenda bæði innan og utan Háskóla Íslands fyrir þeirra framlag til rannsóknanna. Fjarkönnunargögn verða æ algengari í nútímanum ásamt því að verða bæði flóknari og meiri að vöxtum. Rannsóknirnar ganga út á draga fram upplýsingar úr miklu gagnamagni með aðferðum sem eru hraðvirkar og nákvæmar. Mikilvægi þessara rannsókna eykst sífellt,“ segir Jón Atli Benediktsson.

Jón Atli, sem er prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði, hefur á sínum starfsferli verið mjög afkastamikill á þessu sviði og er höfundur um 400 fræðigreina og bókarkafla á sviði rafmagns- og tölvuverkfræði. Mikið er vitnað til verka hans og þá hefur hann fengið margvíslegar viðurkenningar á alþjóðavettvangi  og hér heima fyrir rannsóknir sínar. Nefna má að hann er Fellow hjá Institute of Electrical and Electronics Engineers (IEEE) og Fellow hjá SPIE. Jón Atli hlaut Stevan J. Kristof Award (1990), Hvatningarverðlaun Rannsóknaráðs Íslands (1997), IEEE Millennium Medal (2000) og var valinn rafmagnsverkfræðingur ársins á Íslandi (2014). Þá hefur hann hlotið margar viðurkenningar fyrir vísindagreinar. 

Jón Atli hefur einnig verið virkur í nýsköpun, var m.a. einn frumkvöðla læknisverkfræðifyrirtækisins Oxymap og er höfundur þriggja einkaleyfa.
 

David Landgrebe og Jón Atli Benediktsson