Skip to main content
13. júní 2018

Rapp- og (h)ljóðlistarhátíð á Vigdísartorgi

Fjöldi innlendra og erlendra listamanna kemur saman í Vigdísarhúsi á laugardag til að fjalla um og flytja rapp. Dagskráin hefst með samræðu um listformið rapp og hipp hopp og vinsældir þess og verður hinn vinsæli rappari Króli meðal fyrirlesara. Að umræðunni lokinni kl. 19:30 hefjast svo tónleikar á Vigdísartorgi þar sem Herra Hnetusmjör, Úlfhildur Tómasdóttir og Úlfur Úlfur eru meðal flytjenda. Aðgangur er ókeypis á báða viðburðina á meðan húsrúm leyfir.

Það eru námsleið í dönsku við Háskóla Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sem efna til rapp- og (h)ljóðlistarhátíðarinnar í tilefni af hundrað ára afmæli fullveldis Íslands. Viðburðirnir eru styrktir af fullveldisafmælissjóði og danska menningarmála­ráðu­neyt­inu.

Rapp og hipp hopp í Veröld - húsi Vigdísar

Samræða um rapp og hipp hopp. Hvað einkennir þetta listform og hvers vegna er það svo vinsælt meðal barna og ungmenna?   

Staður: Fyrirlestrarsalur Veraldar
Stund: 16. júní, kl. 18.00-19.30

Dagskrá: 

  • Harpa Rut Hilmarsdóttir, verkefnastjóri Reykjavíkurborg: Hvernig semja 1500 börn rapp saman?
  • Peter Trier Aagaard, rappari og menningarmiðlari: Rapp i Danmark   
  • Króli/Kristinn Óli Haraldsson, listamaður: Frelsi tungumálsins  

Rapp og (h)ljóðlistarhátíð á Vigdísartorgi

Staður: Vigdísartorg
Stund: 16. júní, kl. 19.30 – 22.00 

Flytjendur:

  • 19.30 Herra Hnetusmjör
  • 19.45 Úlfhildur Tómasdóttir
  • 19.50 Góði Úlfurinn
  • 20.00 Dagur Guðna
  • 20.05 Anna Vigsø, frá Danmörku
  • 20.30 Gabriel Warén 
  • 20.30 Óli Björn
  • 20.40 Data Grawlix 
  • 20.50 Georg Ari
  • 20.55 Loke Deph med Boone & Telepa-T, frá Danmörku
  • 21.25 Úlfur Úlfur