Skip to main content
13. janúar 2023

Rannsakaði birtingarmynd víkingsins í Bandaríkjunum

Rannsakaði birtingarmynd víkingsins í Bandaríkjunum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Zachary Jordan Melton hefur varið doktorsritgerð í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Titill ritgerðarinnar er An Excuse for Violence: The Viking Image, Race, and Masculinity in U.S. Popular Culture og hún var unnin undir leiðsögn Jóns Karls Helgasonar, prófessors við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Ástráður Eysteinsson, prófessor við Háskóla Íslands, Emily Lethbridge, rannsóknardósent við Stofnun Árna Magnússonar og Tim Machan, prófessor við Notre Dame háskólann í Bandaríkjunum.

Andmælendur við vörnina voru Angela Sorby, prófessor við Marquette háskólann, og Carl Phelpstead, prófessor við háskólann í Cardiff. Gauti Kristmannsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands fimmtudaginn 12. janúar. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Viðfangsefni ritgerðarinnar eru birtingarmyndir víkingsins í bandarískri dægurmenningu í sinni víðustu mynd. Ritgerðin er viðtökufræðileg rannsókn á norrænum miðaldabókmenntum sem er rannsóknarsvið sem hefur verið í stöðugum vexti síðastliðna þrjá áratugi. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að rannsaka hvernig kynþáttahyggja hvítra manna og ofbeldisfull karlmennskuímynd verða hluti af birtingarmynd víkingsins í Bandaríkjunum. Einnig er rannsakað hvaða menningarfyrirbæri, ásamt fordómum og hugmyndafræði einstakra höfunda, hafa haft áhrif á þessa birtingarmynd innan bæði skáldsagna og kvikmynda. Þó svo að fjallað hafi verið um kyn og kynþætti sem áhrifaþátt í viðtökum á norrænum miðaldabókmenntum í Bandaríkjunum hefur þetta viðfangsefni aldrei verið aðalviðfangsefnið fyrr en nú. Einnig er þetta fyrsta rannsóknin sem greinir og tekur afstöðu til þeirra áhrifa sem bandaríska ævintýraskáldsagan hafði á skilning Bandaríkjamanna á víkingum.

Um doktorinn

Zachary Jordan Melton lauk BA-prófi í ensku við Indiana Wesleyan University (2007) og meistaraprófi í Viking and Medieval Norse Studies við Háskóla Íslands (2017). Hann er einnig með diplómu í Viking Studies frá University of the Highlands and Islands (2014).