Skip to main content
12. apríl 2019

Ráðstefna um merkingarfræði bókmennta í fyrsta sinn á Íslandi

""

Fyrsta ráðstefnan um merkingarfræði bókmennta hér á landi verður haldin í Háskóla Íslands dagana 15.-17. apríl en hana sækja um 70 innlendir og erlendir fræðimenn og nemendur.

Ráðstefnan nefnist á ensku The International Association of Literary Semantics (IALS) og er nú haldin í áttunda sinn. Að henni standa Málvísindastofnun Háskóla Íslands, Bókmennta- og listfræðistofnun Háskóla Íslands og Rannsóknastofa í hugrænum fræðum en Reykjavík – bókmenntaborg annast kynningu hennar með þeim.

„IALS-ráðstefnan var fyrst haldin í Kent 1992 en síðan hefur hún verið haldin í Freiburg 1997, Birmingham 2002, Kraká 2006, Genoa 2010, Kent 2014 og Huddersfield 2017. Markmið hennar er að leiða saman fræðimenn á ólíkum fræðasviðum til að kryfja merkingu bókmenntatexta með aðferðum málvísinda, bókmenntafræði, stílfræði, heimspeki og hugrænna fræða,“ segir Jóhannes Gísli Jónsson, prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands sem á sæti í ráðstefnunefndinni.  Auk hans koma þau Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum, Þórhallur Eyþórsson, prófessor í málvísindum í námsbraut ensku, og Anna Sigríður Guðfinnsdóttir Aðils, sjálfstætt starfandi fræðimaður, að skipulagningu ráðstefnunnar. 

Jóhannes segir ráðstefnuna hafa unnið sér sess sem mikilvægan vettvang fyrir fræðimenn sem fást við merkingu bókmenntatexta. „Þess vegna felst mikil viðurkenning í því að IALS-ráðstefnunni 2019 skuli hafa verið valinn staður á Íslandi en þetta er jafnframt í fyrsta skipti sem ráðstefna um merkingarfræði bókmennta er haldin á Íslandi. Þetta er umhugsunarverð staðreynd þegar þess er gætt að bókmenntir og málfræði hafa verið kennd við Háskóla Íslands frá stofnun hans 1911,“ bendir hann á. 

Alls munu sex innlendir fræðimenn og framhaldsnemar halda erindi á ráðstefnunni. „Við sem stöndum að þessari ráðstefnu höfum sterka sannfæringu fyrir því að það skipti miklu máli fyrir samstarfsfólk okkar og nemendur að þessi ráðstefna sé haldin hér á landi en hana sækja tæplega 50 fræðimenn og nemendur frá a.m.k. 12 löndum víða um heim.“ 

Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á vef hennar.
 

Miðaldahandrit