Skip to main content
10. desember 2020

Óskað eftir lausnum við samfélagslegum áskorunum í Snjallræði

Þátttakendur í Snjallræði 2019

Allt að átta frumkvöðlateymi verða valin til þátttöku í Snjallræði, átta vikna viðskiptahraðli sem einblínir á samfélagslegar lausnir og hefur göngu sína þann 1. febrúar á næsta ári. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hraðalinn sem fer nú fram í þriðja sinn, en hægt er að sækja um þátttöku á vefsíðunni snjallraedi.is fram til 17. janúar nk.

Snjallræði er ætlað að styðja við samfélagslegar lausnir og frumkvöðlastarfsemi sem byggist á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Það geta verið lausnir sem snúa að heilbrigðisþjónustu og vellíðan, bættu menntakerfi, endurnýtanlegri orku, samgöngumálum og matarsóun, svo dæmi séu tekin.

Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og þjálfun frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði samfélagsmála og nýsköpunar og fundi með fjölda leiðbeinenda úr atvinnulífinu.

„Aðferðarfræðin sem er notuð snýst um að beita hönnunarhugsun í nýsköpun og hanna sprotafyrirtæki sem huga betur að þörfum fólks og umhverfisins alls,“ segir Svafa Grönfeldt, ein af stofnendum MIT designX í Boston, sem situr í ráðgjafaráði Snjallræðis.

Að verkefninu koma sérfræðingar frá MIT designX, Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Að verkefninu stendur Höfði friðarsetur en auk háskólanna eru samstarfsaðilar Reykjavíkurborg, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð, Össur, Deloitte, Marel og Landsvirkjun. Framkvæmd verkefnisins er unnin í samstarfi við Icelandic Startups.

„Snjallræði reyndist okkur mikilvægt tækifæri til að þróa áfram verkefni okkar, Ástuhús, þar sem konur finna styrk sinn. Stuðningurinn og leiðsögnin var fjölbreytt og mikilvæg og ekki síst hlutur sérfræðinga MIT desginX. Snjallræði gaf okkur góðan byr í seglin,“ Kristín I. Pálsdóttir, stofnandi Rótarinnar og fyrrverandi þátttakandi í Snjallræði. 

Nánari upplýsingar um hraðalinn má finna á vefsíðunni snjallraedi.is og hjá Icelandic Startups.
 

Þátttakendur í Snjlallræði 2019