Skip to main content
9. apríl 2021

Opnun nýrrar gossprungu án sýnilegra  undanfara gæti valdið bráðri hættu 

Opnun nýrrar gossprungu án sýnilegra  undanfara gæti valdið bráðri hættu  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vísindaráð almannavarna hittist á fundi í dag þann 8. apríl þar sem farið var yfir skjálftagögn og mælingar á aflögun auk framgangs gossins á Reykjanesi, dreifingu hrauns, framleiðslu gosefna og þá mengun sem fylgir eldgosinu.

Þá voru ræddar þær hættur sem snúa að fólki sem fer á gosstöðvarnar og hvaða svæði væru því hættulegust með tilliti til mögulegrar opnunar á nýjum sprungum, hraunflæðis og gasmengunar.

Jarðvísindafólk Háskóla Íslands er í hópi fjölda innlendra og erlendra vísindamanna sem situr fundi vísindaráðsins sem stýrt er af almannavörnum. Fundirnir eru stafrænir um þessar mundir vegna sóttvarnaraðgerða. 

Mesta skjálftavirknin á þeim tíma sem liðinn er frá síðasta fundi er norðarlega í kvikuganginum og nær að Keili. Við Litla-Hrút mælast grunnir skjálftar og er fylgst vel með þeirri virkni. Lítil aflögun mælist á Reykjanesskaganum en merki um breytingar komu fram við nýjar gossprungur sem opnuðust á annan í páskum og aðfaranótt þriðjudags.

Breytingarnar eru mjög litlar og fyrirboðar ekki greinanlegir áður en sprungurnar opnast. Vísbendingar eru um að á svæðinu frá sunnanverðum Geldingadölum og norðaustur fyrir gossprungurnar liggi kvika grunnt og ekki hægt að útiloka að fleiri gossprungur geti opnast á næstu dögum eða vikum. 

Bráðabirgðamælingar benda til þess að hraunflæði hafi frekar aukist við opnun síðustu gossprungna en nákvæmari mælinga er að vænta fyrir morgundaginn. Hraun rennur frá öllum sprungunum þremur og fer það niður í Meradali og Geldingadali. Við opnun á fleiri sprungum og með auknu hraunflæði má leiða líkur að því að magn gass frá gosstöðvunum gæti hafi aukist miðað við það sem áður var þegar einungis gaus í Geldingadölum. Mesta afgösunin kemur frá gígunum en mun minna frá hraunrennslinu sjálfu. Mikil mengun mælist í kringum gosstöðvarnar en utan hennar dvínar hún hratt. Veðurstofan hefur sett upp tvo síritandi gasmæla, annan við gönguleið A og hinn í Meradölum.

Veðurstofan mun vinna heildarhættumat fyrir svæðið þar sem tekið er á hættu vegna hraunrennslis, gasmengunar og möguleika á myndun nýrra gossprungna. Opnun nýrrar gossprungu án sjáanlegra undanfara gæti valdið bráðri hættu fyrir fólk. Svæðið sem þessi hætta nær til er talið vera þar sem kvikan náði næst yfirborði eða frá SV-hluta Geldingadala norðaustur að Litlahrúti.

Kona á gosstöðvunum